Skilmálar

Hver erum við

Vefsalan ioveidileyfi.is er í eigu Iceland Outfitters ehf.

Almennt

ioveidileyfi.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur vara

Kaupandi hefur 7 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við ioveidileyfi.is fyrir frekari upplýsingar.

Skilafrestur veiðileyfa

Ekki er hægt að skila veiðileyfum. ioveidileyfi.is getur aðstoðað við að endurselja veiðileyfi, ef kaupandi getur ekki nýtt leyfin, gegn söluþóknun.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni, fyrir utan verð veiðileyfa, eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

ioveidileyfi.is
Iceland Outfitters
Kt. 630905-1920
[email protected]
+354 466 2680

Hrauntunga 81
200 Kópavogur
vsk: 119976