ION svæðið á Þingvöllum
Almennar upplýsingar
ION svæðið er eitt af stórkostlegustu veiðisvæðum landsins. Árlega veiðast urriðar upp undir 30 pund og fá veiðisvæði á Íslandi eru jafn gjöful og ION svæðið. Hér hafa margir draumafiskar veiðst á síðustu árum og eflaust eiga margir eftir að veiða stærsta fisk lífs síns á svæðinu.
Ath ekki er heimilt að veiða sunnan megin í þorsteinsvík á laugardögum og sunnudögum en þá tilheyrir svæðið sumarbústaðaeigendum. Nánara má á þessum dögum engöngu veið Nesjameginn í þorsteinsvík að grjótgarði sem stendur fyrir miðri víkinni.
Leiðarlýsing og veiðisvæði
Ekið er inn afleggjara hjá bóndabænum Nesjar og keyrt eftir heimreiðinni. Þegar um 300-400 metrar eru í bóndabæinn er beygt til hægri á eina slóðanum sem liggur til hægri. Sá slóði liggur beint niður í Þorsteinsvík. Veiðimenn leggja bílum sínum í sandfjörunni.
Víkinni er skipt í tvennt, á virkum dögum fylgir öll víkin ION veiðisvæðinu en um helgar tilheyrir ekki suðurpartur Þorsteinvíkur sem eða frá grjótum (sandruðníng) en Norðurparturinn sem er að öllu jöfnu aðalveiðisvæðið fylgir svæðinu alla daga vikunar.
Þegar keyrt er í Ölfusvatnsós er keyrður Grafningsvegur efri 360, að Ljósafossvirkjun. Þaðan er beygt niður af veginum við Ölfuvatnsá og bílnum lagt á lítið bílastæði við enda slóðans. Þaðan ganga menn niður að Ölfusvatnársós.
Vinsælar flugur
Ýmsir streamerar eins og Black Ghost, Nobbler, Grey Ghost o.fl. o.fl.., Púpur í ýmsum stærðum og suma daga hafa þurrflugur gefið vel.
Hentug veiðitæki
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Duis feugiat feugiat metus, eget vehicula libero tempus eu. Lorem ipsum dolor sit amet,
Merktir fiskar
Gisting
Það fylgir ekki veiðihús vatnasvæðinu en við bendum á gistingu á ION hóteli en þar er einnig veitingastaður og veiðibókin þar sem afli er skráður.
Information
Staðsetning
Þingvallavatn. Ölfusvatnsárós: 64.131540, -21.093888 Þorsteinsvík: 64.151775, -21.204045
Fjöldi stanga
4 stangir, 2 og 2 stangir seldar saman.
Leyfilegt agn
Eingöngu fluguveiði og öllum fiski sleppt.
Kvóti
Öllum fiski sleppt.
Veiðitímabil
15. apríl - 15. september
Daglegur veiðitími
8:00-14:00 og 16:00-22:00 Frá 20. ágúst 08:00-14:00 og 15:00-21:00
Veiðivarsla
S. 855 2680 & 855 2681
Skráning afla
Veiðibók er í kjallara ION hótelsins og eru menn skyldir að skrá allan afla í lok dags. Einnig er hægt að senda veiðitölur á info@icelandoutfitters.com
Veiðikort
