Scorpio switch & tvíhenda

124.000 kr.175.000 kr.

Henrik Mortensen lýsir Scorpio stönginni sem hinu fullkomna flugukast/veiðitæki, „a truly perfect fly-casting-fishing-tool“.

Krafturinn er magnaður og stjórnin sem þú hefur á stönginni er ólíkt því sem við höfum áður kynnst.  Stangirnar eru hannaðar með það í huga að sækja kraftinn neðst í stöngina og halda toppnum í beinni línu í köstunum.

Scorpio stangirnar hafa klassískt og tímalaust útlit, svartar með hágæða epoxy húð.

Við seljum tvær stærðir af Scorpio stöngum sem henta best fyrir íslenskar aðstæður.

  • 10,10″ switch stöng, hentar nánast í alla laxveiði og
  • 13,2″ tvíhenda sem er frábær í meira vatni

 

 

Scorpio stangirnar eru framleiddar úr blöndu af byltingarkenndu nýju efni sem heitir grafen og carboni.  Þetta er ótrúlega sterkt efni, um 100-300 sinnum sterkara en stál.   Helsta ástæðan fyrir því að við notum grafen fyrir Scorpio stangirnar er að stangirnar eru mun sterkari en einnig um 15% hraðari.  Prófanir okkar sýna að það er mun auðveldara að hlaða stöng og  að stjórna línunni með stöngum úr grafeni.

Með þessari stöng finnur þú virkilega fyrir aukakraftinum og nákvæmninni sem þú færð frá grafeninu.

Scorpio stangirnar eru allar með einstakt handfang sem tryggir bæði nákvæmni og fjarlægð í köstum, sem lykilatriði í velgengni fluguveiða. Augun eru úr krómuðum flækjulausum „japönskum Fuji K“ sem eru þau allra bestu á markaðnum í dag og mikil framför þegar veitt er með skotlínum.

Stangirnar koma í mjúkum taupoka sem er búinn örtrefjaklút til að hreinsa samskeyti stangarinnar fyrir samsetningu eða geymslu. Stangirnar eru afhentar í svörtu 2GO hulstri úr áli – ný og flott Salmologic hönnun sem er hannað þannig að hægt sé að nálgast stangirnar frá báðum endum. Hulstrið rúmar ekki aðeins eina, heldur tvær stangir í einu, sem gerir það tilvalið fyrir ferðaveiðimanninn.

Ábyrgð á stöngum

Hreinsa
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: ,
Scorpio stangir

10'10", 18 gr (switch), 13'2", 31 gr (tvíhenda)