Þjórsártún
Þjórsártún í Þjórsá
Almennar upplýsingar
Þjórsártún er Austurbakki Þjórsár til móts við jörðina Urriðafoss og Þjótanda. Stangveiðin á Þjórsártúni er tilraunaverkefni sem skilar okkur betri upplýsingum með hverju árinu. Við erum enn á frumstigi stangveiðarinnar og veitt er á stöng þá daga vikunar sem netin eru ekki í ánni eða hvíldardaga netabænda.
Veiðisvæði Þjórsártúns er um 3 km langt og mjög glæsilegt ásýndar. Árlega hafa veiðst þúsundir laxa í Þjórsá í gegnum tíðinna svo það er allveg tilraunarinnar virði að prófa stöngina, verðinu verður stillt í hóf og við vonum að sem flestir komi og reyni veiðina á þjórsártúni.
Bóka veiðileyfi
Það eru engin dagbókaratriði ennþá.
Leiðarlýsing og veiðisvæði
Veiðisvæðið nær frá Fossbrún á urriðafossi og nær upp fyrir Heiðarenda og alls um 3 km. Athugið að öll veiði í Þjórsártúni er á Austurbakka Þjórsár.
ATH að Urriðafoss Austan megin er netaveiðisvæði og stangveiði ekki heimil. Enda engir veiðistaðir sem hafa gefið á því svæði þrátt fyrir mikla ástundun.
Vinsælar flugur
Bismo, Sunray, Þýsk snælda, Francis og fleira.
Hentug veiðitæki
Tvíhenda með sökktaum. Maðkveiði
Besti veiðistaður
Kláfabreiða
Gisting
Gisting fylgir ekki.
Staðsetning
Veiðibók gatnamót Þjóðvegar og Urriðafossvegar.
Fjöldi stanga
4 stangir
Leyfilegt agn
Fluga, maðkur og spúnn.
Kvóti
5 laxar á stöng á dag.
Veiðitímabil
1. júní -
Daglegur veiðitími
07:00 - 13:00 og 16:00 - 22:00 eftir 11. ágúst, 15:00 - 21:00
Veiðivarsla
Karl Ölvirsson, s:893 5380
Skráning afla
Veiðibók er í kassa við þjóðveg 1, þar sem keyrt er niður að Urriðafossi. Vinsamlegast skráið allan afla.