Ytri Rangá Urriðasvæði
Ytri Rangá Urriðasvæði
Almennar upplýsingar
Silungasvæðið í Ytri Rangá ofan Árbægjarfoss.
Silungasvæðið í Ytri Rangá er um 30 km langt og nær ýmist frá Heklurótum niður af Grjótneshyl við bæinn Geldingalæk eða frá Heklurótum niður að Árbæjarfossi eftir tímabilum. Ytri Rangá er fræg fyrir væna og stóra Urriða og er með mjög fjölbreytta og víðferma veiðistaði. Töluverð Laxavon er á svæðinu þegar líður á sumarið og í góðum árum hefur verið umtalsverð laxveiði. Ytri ranga rennur um grösugt land með djúpum bökkum í beygjum. Veiðisvæðið víðfeðmt og silungurinn hefur marga staði til að fela sig.
Helstu Veiðistaðir eru heiðarvað, ármótahylur, Beygurnar við Kaldbak ofl ofl
ATH að það geta verið Hrossastóð víða um ánna og er það á ábyrgð veiðimanna hvar þeir leggja bílum sínum. Veiðifélag Ytri Rangár bætir ekki skemdir á bílum eftir hross eða annan búfénað.
Silungstímabilið hefst 1. Apríl og líkur 10 okt.
veiðisvæði 1 Apríl- 14 Júlí Heklurætur – Árbæjarfoss
Veiðisvæði 15 júlí – 10 okt Heklurætur – Grjótneshylur(Geldingalækur)
Bóka veiðileyfi
Leiðarlýsing og veiðisvæði
Vinsælar flugur
Púpur og streamerar.
Hentug veiðitæki
Við mælum með einhendum með línu stærð 5 – 7
Gisting
Veiðihús fylgir ekki.
Staðsetning
63.890085, -20.265042
Fjöldi stanga
8 stangir, seldar stakar frá morgni til kvölds
Leyfilegt agn
engöngu Fluguveiði.
Kvóti
Öllum Urriða skal sleppt,
Veiðitímabil
1 Apríl - 10 okt. Veiðisvæðið nær frá Heklurótum - Árbægjarfoss 1 Apríl - 14 júlí. Heklurótum - Grjótneshylur 15 júlí 10 okt
Daglegur veiðitími
07:00 - 13:00 og 16:00 - 22:00
Veiðivarsla
Ari 8425559
Skráning afla
Vinsamlegast sendið veiðitölur á [email protected] eða hringið í síma 8425559