Leirá, vorveiði
Leirá í Leirársveit, vorveiði
Almennar upplýsingar
Leirá býður upp á eina áhugaverðustu sjóbirtingsveiðina nálægt Reykjavík. Leirá er lítil tveggja stanga á sem leynir á sér. Einn besti hylurinn er Brúarhylur nr. 4 en hann er við Þjóðvegsbrúnna. 24 merktir staðir eru í Leirá og er hún um 7 km löng.
Bóka veiðileyfi
Leiðarlýsing og veiðisvæði
Vinsælar flugur
Ýmsar litlar straumflugur eins og Black Ghost, Nobbler, Grey Ghost o.fl.,
Púpur í ýmsum stærðum.
Hentug veiðitæki
Einhendur fyrir línuþyngdir #5-7
Gisting
Lítill en huggulegur bústaður fylgir Leirá og sést hann frá Þjóðvegsbrúnni. Beygt er upp að honum á slóða alveg við brúna.
Aðstaða:
Bústaðurinn er lítill. Eldhús/stofa með litlum ísskáp, 2 x gashellum, örbylgjuofni, gasgrilli og vöðlugeymslu á verönd. Borðbúnaður fyrir 6. Vinsamlegast takið með ykkur rúmföt og allt lín, tuskur, viskastykki og annað sem þarf.
Gistipláss fyrir 4+. Sængur og koddar fyrir 4.
1 svefnherbergi með 2 x 80 cm rúmum. Svefnloft með 2 x 100 cm breiðum dýnum. Svefnsófi 150 cm breiður
Information
Staðsetning
Veiðihús:
Fjöldi stanga
2 stangir seldar saman.
Leyfilegt agn
Eingöngu fluguveiði og öllum fiski sleppt.
Kvóti
Öllum fiski sleppt.
Veiðitímabil
Vorveiði: 1. apríl - 15. maí
Daglegur veiðitími
8:00-20:00
Veiðivarsla
S. 855 2680 & 855 2681
Skráning afla
Veiðibók er í veiðihúsi. Vinsamlegast skráið allan afla.