Hölkná
Hölkná í Þistilfirði
Almennar upplýsingar
Hölkná í Þistilfirði er ein af frægu stórlaxaánum á Norðausturhorninu sem flesta dreymir um að veiða.
Stórglæsilegt veiðihús fylgir veiðileyfum en mikið hefur verið lagt í uppbyggingu í Hölkna á síðustu árum og er veiðihúsið sennilega eitt af flottari smærri veiðihúsum landsins. Veitt er á 2 stangir í Hölkná og spannar veiðisvæðið um 10 km frá ólaxgengum fossi og niður af ósi.
Hölkná er stórskemmtileg laxveiðiá og hefur mjög hátt stórlaxahlutfall. Þetta er á sem við mælum sterklega með að menn prófi í góðra vina hópi.
Bóka veiðileyfi
Það eru engin dagbókaratriði ennþá.
Leiðarlýsing og veiðisvæði
Vinsælar flugur
Collie dog, hefðbundnar laxaflugur og túbur í öllum stærðum. Hitch virkar ágætlega í júlí.
Hentug veiðitæki
Hölkná er meðalstór laxveiðiá og því hentar vel að nota litlar tvíhendur, switch og einhendur með flotlínu.
Gisting
Fallegt og vel búið veiðihús fylgir ánni og er þjónustugjald innfalið í verðinu (uppábúið og þrif). Gistipláss er fyrir fjóra í tveimur herbergjum.
Staðsetning
Hjálparfoss: 64°06'52.2"N 19°51'13.7"W
Fjöldi stanga
2 stangir, seldar saman.
Leyfilegt agn
Fluga.
Kvóti
Öllum laxi skal sleppt.
Veiðitímabil
Daglegur veiðitími
07:00 - 13:00 og 16:00 - 22:00
Veiðivarsla
Olafur Vigfússon s. 8943429
Skráning afla
Veiðibók er í veiðihúsi, vinsamlegast skráið allan afla.