Ytri-Rangá: Sjóbirtings leyfin er komin í sölu fyrir 2026

Sjóbirtingsveiðin í Ytri-Rangá hefst 1. apríl. Áin hefur notið sí vaxandi vinsælda fyrir vorveiði og eftirspurn eykst milli ára. 1. apríl er nú þegar uppseldur en enn er hægt að bóka lausa daga í aprílmánuði. 

Seldar eru 2 eða 4 stangir saman í stökum dögum og fylgir þá gisting í sumarhúsinu Hallanda sem rúmar allt að 8 manns. Allar helgarnar í apríl eru uppseldar nema ein, 11-12 apríl. Veiðin er frekar jöfn út tímabilið og er því maí ekki síðri kostur en apríl. Britingurin er almennt í mjög góðum holdum og er mikið á hreyfingu og ekki óalgengt að hann fer til sjávar og kemur síðan aftur upp í á.

Staumflugur hafa verið að gefa best síðastliðin ár en einnig eru hefðbundnar vor púpur einnig að gefa!

Hægt er að bóka leyfi fyrir Ytri Rangá vorveiði á IO veiðileyfi eða hafa samband við Stefán á [email protected]