Ert þú leiðsögumaður eða tilvonandi leiðsögumaður?
Við hjá IO veiðileyfi / Iceland Outfitters leitum reglulega að nýjum liðsauka í leiðsagnarteymið okkar. Við skipuleggjum fjölbreyttar ferðir tengdar veiði, allt frá dagsferðum upp í lengri ferðir. Laxveiði og silungsveiði.
Við leitum að kröftugu fólki til liðs við okkur.
Einstaklingur þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:
- Framúrskarandi þjónustulund
- Mjög góða veiðikunnáttu á flugu
- Bílpróf
- Jeppa eða jeppling sem rúmar fimm manns þægilega, 5 dyra bifreið
- Vilja og getu til að læra ársvæði okkar vel
- Vera orðinn 20 ára
- Brennandi áhuga á veiði
- Góð ensku- og íslenskukunnátta
Aukakostir
- Reynsla af leiðsögn og ferðamennsku
Ef þú telur þig eiga heima í okkar teymi viljum við heyra frá þér.
Sendu okkur tölvupóst með upplýsingum um þig og af hverju þú telur þig vera sá sem við erum að leita að.
Senda má tölvupóst á [email protected]