Veiðihús leirá klárt fyrir tímabilið
Nýlega tókum við hjá IO veiðileyfum þá ákvörðun að taka veiðihús Leirár í gegn, í kjölfar þess að nýr leigusamningur var gerður síðasta vetur. Markmiðið var einfalt, að bæta aðstöðuna án þess að missa þann sjarma sem gerir svona sumarhús sérstök.
Veiðihúsið er einstaklega huggulegt og hentar fullkomlega fyrir minni hópa. Það rúmar allt að 5 manns, en búnaður, rúmföt og aðstaða miðast við 4 veiðimenn.
Undanfarið hefur húsið fengið gott viðhald, en nú í vor var nánast allt tekið í gegn að innan. Eldhúsið var endurnýjað, ný gólfefni lögð, nýr sófi settur inn og húsið málað að innan. Einnig var skipt úr gömlum gashellum yfir í rafmagn til að auka öryggi og grillið endurnýjað. Útkoman er sumarhús með nútímalegri aðstöðu sem heldur samt í klassískan sumarhúsablæ. Stefnt er að því að halda áfram í sumar og mála húsið að utan.
Leirá er ein af fáum tveggja stanga ám í nágrenni við Reykjavík þar sem veiðihús fylgir með og er staðsett aðeins um 40 mínútur frá. Svæðið býður upp á flotta sjóbirtingsveiði á vorin og síðan bæði lax og sjóbirting þegar líður á sumarið. Þetta er nett veiðisvæði þar sem nákvæmni og upplifun haldast í hendur. Seldar eru tvær stangir saman frá morgni til kvölds, en veiðimenn geta komið í húsið daginn áður, kl. 20:00 eða 21:00 eftir árstíma.
Með þessu veiðihúsi og veiðileyfum er þetta mjög gott kombó, einfalt, notalegt og á góðu verði. Tilvalið fyrir vini eða litla hópa sem vilja komast aðeins út úr bænum og njóta veiðinnar í fallegu umhverfi.
Hægt er að smella hér til að skoða lausar stangir í Leirá í sumar og haust.
Hægt er að smella hér til skoða lausar stangir í leirá í vor.
KV,
IO veiðileyfi