Veiðifréttir
Góð veiði er á svæðunum okkar þessa dagana, hér er stutt samatakt með brakandi ferskum tölum úr Ytri Rangá og Urriðafossi ásamt stuttri yfirferð af silungsveiðisvæðunum okkar.
Ytri Rangá
Við erum farin að sjá stærri göngur og fóru 92 laxar upp teljarann í Ægissíðufossi í gær, í dag eru 21 búinn að fara teljarann. Fyrir þá sem eru ekki kunnugir staðháttum er þá er Ægissíðufoss rúmlega 15km frá sjó. Smálaxinn er farinn að ganga í meira magni, það er stórstreymt 13. júlí og verður gaman að fylgjast með göngunum næstu daga!
Heildartala veiddra laxa er 204.
Urriðafoss
Áfram eru stórar göngur í Urriðafossi og góð veiði, við höfum heyrt frá mörgum veiðimönnum sem klára kvótann vel fyrir lok veiðidags. Alls eru 461 laxar komnir á land á stangirnar fjórar og trónir Urriðafoss á toppnum sem aflahæsta laxveiðisvæði landsins í ár þegar þetta var skrifað.
Við eigum spennandi daga til í Urriðafossi á næstunni og eru seldar stakar stangir! Smellið hér til að skoða hvað er laust.
Ósasvæði Hólsár (Vesturbakki)
Núna fer besti tíminn á ósasvæðinu að byrja en gríðarlegt magn af laxi gengur þarna upp á hverju sumri, við höfum heyrt af veiðimönnum sem hafa verið að sjá og setja í góða laxar þarna undanfarna daga. Seldar eru tvær stangir í pakka.
Urriðafoss B og Þjótandi
Stórar göngur upp Urriðafoss er gott merki fyrir svæðin fyrir ofan en júlí og ágúst er besti tíminn þar, fyrstu fiskarnir veiddust á B svæðinu og Þjótanda snemma í júní og er þetta frábær ódýr laxveiði.
Júlí er dásamlegur tími fyrir silungsveiði og hefur verið góð veiði á svæðunum okkar í sumar, núna fer að koma tími þurrflugu sem er að mati margra skemmtilegasti tími ársins – en hjá okkur er alltaf skemmtilegasti tími ársins 🙂
Förum að veiða í sumar – þetta veiðir sig nefnilega ekki sjálft!