Svörtuklettar við Þingvallavatn opna á morgun, 15. apríl.
Svæðið er fallegt og ágætlega rúmt og getur boðið upp á mjög skemmtilega vatnaveiði skammt frá Reykjavík innan við 40 mín akstur. Gott aðgengi er að svæðinu og það hentar því einnig jepplingum og fólksbílum með smá upphækkun.
Svæðið er eitt af þekktari veiðisvæðum við Þingvallavatn, meðal þeirra eins og Þjóðgarðurinn, Kárastaðir og svo framvegis. Fyrrihluti tímabilsins er helst að finna urriða og þá er gott að nota straumflugur eða spún, eftir því sem veiðimenn kjósa. Algengst er að finna þá við klettana sjálfa en þá er gott að vað út og hafa augun skörp þar sem þeir eru oftar en ekki duglegir að sýna sig í yfirborðinu.
Þegar líður á vorið og sumarið fara kuðungableikjurnar að láta vart um sig og geta þær orðið gríðarlega stórar, allt að 60cm. Best hefur verið að nota púpur og langan taum og strippa hægt inn til að ná stóru kusunum á svæðinu. Þær halda sér mest við ströndina á gamla báta húsinu. Það er ekki einungis kuðungableikja á svæðinu einnig sílableikjur.
Sílableikjunar eru ekki eins stórar en geta náð upp 50cm. Þær eru meira tækifærissinni og taka litlar straumflugur jafnt sem púpur, þær halda sér frekar sunnan við klettana ef horft er til suður við bátaskýlið. Þær eru fyrr á ferðin miðað við hina bleikjustofnana í vatninu og ekki óalgengt að veiðist í opnun svæðisins.
Hægt er að sjá kort af af svæðinu hér að neðan. Við biðjum veiðimenn að ganga ekki á landi Sumarhúsa eiganda og frekar ganga í vatninu við strandlínu.
Veiðitímabilið stendur frá 15. apríl til 15. september og hefur upp á margt að bjóða í vor, sumar og haust, þar sem veiðin er fjölbreytt og spennandi í einstöku umhverfi. Þar sem aðstæður, náttúra og flottir fiskar spila saman og skapa eftirminnilegar minningar við bakkann.
Bera skal í huga að veiðimenn þurfa að keyra yfir eitt vað á leiðinn á svæðið, við mælum vera með varan á þegar það hafa verið miklar leysingjar eða rigningar tíð þar sem þessi litla á getur orðið ágætlega vatnsmikil í þannig aðstæðum.
Hægt er að bóka veiðileyfi fyrir Svörtukletta með því að smella hér.
MBK,
IO veiðileyfi