Vor í lofti og sumarið nálgast
Góð veiði hefur verið á okkar svæðum síðustu daga. Ytri Rangá byrjaði af krafti í sjóbirtingnum og urriðaveiðin hefur verið góð í Hólaá og Fullsæli í upphafi tímabils. Leirá fór seinna af stað vegna mikils íss og kulda yfir páskana, en fór að opnast nokkrum dögum eftir páska.
Það styttist í opnun laxveiðinnar, aðeins 45 dagar, og við eigum laus leyfi á frábærum dagsetningum í Ytri Rangá og Urriðafoss. Urriðafoss á Þjórsá er eitt þekktasta laxveiðisvæði landsins og sker sig frá Ytri Rangá að því leyti að þar er meiri þéttleiki af laxi á tiltölulega afmörkuðu svæði, á meðan Ytri Rangá býður upp á lengra og fjölbreyttara veiðisvæði með meiri dreifingu fisks og skilar fleiri löxum yfir tímabilið. Urriðafoss er einnig meira snemmsumarsvæði, á meðan Ytri Rangá nýtur sín oft betur þegar líður á sumarið.
Laus veiðileyfi í Urriðafoss í byrjun júní eru tvær stangir þann 4. og 5. júní. Í júlí er einn besti tími sumarsins þegar smálaxinn er mættur, og við eigum þar á meðal 11, 13, 14, 16 og 18 júlí þar sem fjórar stangir eru lausar.
Í Urriðafossi eru seldar 2 eða 4 stangir saman frá morgni til kvölds, með 3 tíma hvíld á milli kl. 13 og 16, sem hentar vel fyrir þá sem vilja einbeita sér að ákveðnum veiðistöðum yfir daginn.
Það sem er eftir laust í Ytri Rangá er eftirfarandi út árið. Í júní er laust þann 22, 23 og 24 júní, selt frá morgni til kvölds. Í júlí eru örfáar stangir eftir á eftirsóttum tíma, 24–28 júlí, sem er tími þar sem bæði smálax og stærri fiskar eru að ganga samtímis.
Þegar líður að haust eru enn er en frábært tækifæri að eiga frábæra veiði í ágúst og september. Í lok ágúst er ein stöng laus 23–28 ágúst, ásamt nokkrum stöngum 28–30 ágúst og yfir í byrjun september. Í september eru einnig laus leyfi, þar á meðal stakur dagur 4–5 september, spúnaopnunin 8–12 september og 18–20 september. Þá eru stangir enn lausar 22–27 september, sem eru seinustu spúnadagarnir, seldir með gistingu og fullu fæði á hagstæðu verði. Dagarnir eru seldir einn í einu og tilvalið að taka 2–3 daga til að ná góðri yfirferð yfir ánna, enda breytist veiðin töluvert eftir því hvar fiskurinn liggur hverju sinni. Seinasti gistiskyldudagurinn er 27 september.
Frá 28 september til 20 október er engin gistiskylda og eingöngu fluguveiði, sem gefur veiðimönnum meira frelsi í skipulagningu, en veiðimenn geta þó bókað gistingu með morgunverði á góðum kjörum.
Til að skoða nánar um Ytri Rangá: Smellið Hér
Til að skoða nánar um Urriðafoss: Smellið Hér
Einnig má senda fyrirspurnir beint á [email protected] eða [email protected]