Sterkar göngur í Ytri Rangá!

Veiðin i Ytri verður betri og betri með hverjum deginum og endurspeglast það í göngum síðustu daga. Í gær fóru 211 laxar upp teljarann og í dag eru þegar komnir 44 laxar í gegn. Alls eru komnir  402 laxar á land og var vikuveiðin 197 laxar sem er frábær veiði. Ef við berum veiðina saman við 17. júlí 2024 voru 448 laxar komnir á land þannig veiðin er nánast alveg eins og á sama tíma og í fyrra. 

Við erum að sjá mun þéttari göngur í ár heldur en sama tíma og í fyrra, núna fer daglega yfir 100 fiskar í gegnum í teljarann en í fyrra voru laxarnir að fara meira í gusum. 

 
Svona voru tölurnar í fyrra, stærsta gangan 14. júlí skilaði 260 löxum upp teljarann í Ægissíðufossi. 


Hér má sjá tölfræðina með göngurnar í ár, skemmtilegt að bera þetta saman en 16. júlí gengu 215 laxar í gegnum teljarann. 

Það er lítið laust í Ytri á næstunni en við eigum leyfi í ágúst, september og október – smellið hér til þess að sjá hvað er laust. 

Veiðileyfi - Flugukastnámskeið - Salmologic veiðivörur - Gjafabréf