Aflahæsta veiðivikan í Ytri síðan 2022

Ytri er í toppmálum eins og flestir veiðimenn vita, á miðvikudagskvöldið var heildarveiðin 1635 laxar og situr Ytri á toppnum sem aflahæsta laxveiðiá landsins.

Síðasta vika gaf 516 laxa og er það best vikuveiðin í Ytri Rangá síðan 2022 en þá veiddust 525 laxar í vikunni 27. júlí – 3. ágúst. Núna í hádeginu (8. ágúst) voru komnir 1764 laxar á land og náðum við örugglega 2000 löxum fyrir næsta miðvikudag – það þýðir að sjálfsögðu pönnukökur!

Við eigum spennandi veiðileyfi í boði í ágúst og fram á haustið – hér er stutt yfirlit yfir það sem er laust:


Ytri Rangá – Aðalsvæði

(Húsgjald fyrir einn innifalið í verði)

Ágúst:
13–15 · 17–19 · 19–20 · 24–25 · 25–26 · 26–27 · 27–29 · 29–31

September (eftir 22. sept. er gistiskylda aflögð og stakir dagar seldir):
31–02 · 02–04 · 04–06 · 16–18 · 18–20 · 20–22 (Hosted holl með Árna og Stefáni)
Stakir dagar – 22. eh · 23 · 24 · 25 · 26

Október (frá 7. október er eingöngu fluguveiði leyfð)

  • Allt selt í stökum dögum – mikið laust en selst hratt upp!

 

Smellið hér til að kaupa leyfi í Ytri Rangá! 


Vesturbakki Hólsár – Ósasvæði

Mikið af laxi að ganga og hægt að lenda í algjörri veislu – Tvær stangir seldar saman í pakka

 

Laus leyfi í ágúst
 10 · 13 · 16 · 17 · 18 · 20 · 21 · 24 · 25 · 26 · 27 · 28 · 29 · 30 · 31

Smellið hér til að kaupa leyfi á Vesturbakka Hólsár!  


Gutlfoss – 2 stangir seldar saman (má veiða á fjórar til og með 8. september)

  • Slatti laust í ágúst, september og október og laxinn byrjar að ganga upp Árbæjarfoss í meira magni þegar skyggja tekur á næturnar

  • Maðkur og spúnn leyfður frá 9. september


📧 [email protected]
📞 616-1988

Veiðileyfi - Flugukastnámskeið - Salmologic veiðivörur - Gjafabréf