Urriðafoss

Urriðafoss í Þjórsá

Almennar upplýsingar

Þjórsá geymir einn stærsta villta laxastofn landsins og hefur laxveiði verið stunduð þar lengur en elstu menn muna.

Stangveiðin í Urriðafossi er meira ævintýri en nokkurn gat órað fyrir og hefur Urriðafoss trónað á toppnum yfir bestu laxveiðisvæði landsins frá því að stangveiði hófst í fossinum árið 2017.

Bóka veiðileyfi

10 júl. 11 júl. 12 júl. 13 júl. 14 júl. 15 júl. 16 júl. 17 júl. 18 júl. 19 júl. 20 júl. 21 júl. 22 júl. 23 júl. 24 júl. 25 júl. 26 júl. 27 júl. 28 júl. 29 júl. 30 júl. 31 júl. 01 ágú. 02 ágú. 03 ágú. 04 ágú. 05 ágú. 06 ágú. 07 ágú. 08 ágú. 09 ágú. 10 ágú. 11 ágú. 12 ágú. 13 ágú. 14 ágú. 15 ágú. 16 ágú. 17 ágú. 18 ágú. 19 ágú. 20 ágú. 21 ágú. 22 ágú. 23 ágú. 24 ágú. 25 ágú. 26 ágú. 27 ágú. 28 ágú. 29 ágú. 30 ágú. 31 ágú. 01 sep. 02 sep. 03 sep. 04 sep. 05 sep. 06 sep. 07 sep. 08 sep. 09 sep. 10 sep. 11 sep. 12 sep. 13 sep. 14 sep. 15 sep. 16 sep. 17 sep. 18 sep. 19 sep. 20 sep. 21 sep. 22 sep. 23 sep. 24 sep. 25 sep. 26 sep. 27 sep. 28 sep. 29 sep. 30 sep.
Urriðafoss í Þjórsá
2
2
2
2
1
1
1
1
2
2
2
2
2
1
2
2
2
2
4
3
3
4
2
4
2
4
4
4
4
4
4
4
4
2
4
3
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
2
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
10 júl. 11 júl. 12 júl. 13 júl. 14 júl. 15 júl. 16 júl. 17 júl. 18 júl. 19 júl. 20 júl. 21 júl. 22 júl. 23 júl. 24 júl. 25 júl. 26 júl. 27 júl. 28 júl. 29 júl. 30 júl. 31 júl. 01 ágú. 02 ágú. 03 ágú. 04 ágú. 05 ágú. 06 ágú. 07 ágú. 08 ágú. 09 ágú. 10 ágú. 11 ágú. 12 ágú. 13 ágú. 14 ágú. 15 ágú. 16 ágú. 17 ágú. 18 ágú. 19 ágú. 20 ágú. 21 ágú. 22 ágú. 23 ágú. 24 ágú. 25 ágú. 26 ágú. 27 ágú. 28 ágú. 29 ágú. 30 ágú. 31 ágú. 01 sep. 02 sep. 03 sep. 04 sep. 05 sep. 06 sep. 07 sep. 08 sep. 09 sep. 10 sep. 11 sep. 12 sep. 13 sep. 14 sep. 15 sep. 16 sep. 17 sep. 18 sep. 19 sep. 20 sep. 21 sep. 22 sep. 23 sep. 24 sep. 25 sep. 26 sep. 27 sep. 28 sep. 29 sep. 30 sep.

Urriðafoss 2022 aðalsvæði

1. – 9. júní

Veitt á 4 stangir kvóti 2 fiskar á stöng á dag.  Fluga og maðkur. 

Við biðlum til veiðimanna að sleppa stórlaxi sé þess kostur.

10. júní – 30. september

Veitt á 4 stangir, kvóti 5 laxar á dag. Fluga og maðkur. 

Við biðlum til veiðimanna að sleppa stórlaxi sé þess kostur.

Frá 15. júlí fylgir Sandholt aðalsvæðinu til loka tímabils.

Ath: Sandholt gaf nokkur hundruð laxa bæði í ár og 2019 og mun auka gæðin á aðalsvæðinu mikið þegar líður á sumarið.  Sandholt hefur verið að gefa vel þegar er komið inn í júlí og fram í september.

Aðstöðuhúsið mun áfram fylgja seldum veiðileyfum þar sem veiðifólk getur komist á klósett, hellt uppá kaffi, grillað o.þh. 

Fyrir þá sem vilja koma kvöldinu áður og gista er boðið upp á góða gistingu við bæinn Urriðafoss fyrir frekari upplýsingar um gistingu, hafið samband við:  urridafossapartments@gmail.com 

Hér má sjá myndir og skoða gistinguna sem er í boði

Leiðarlýsing og veiðisvæði

Veiðisvæðið nær  frá veiðistöðunum Gljúfur og niður fyrir veiðistaðina Vaður.
 
Veitt er á 4 stangir á veiðisvæðinu og eru aðalveiðistaðirnir Lækjalátur og Hulda.  Efra svæðið er Lækjalátur og Lækjarbreiða og neðra svæðið eru Hulda og niður fyrir Vað.  Frá og með 15. júlí fylgir veiðistaðurinn Sandholt.  2 stangir veiða efra og 2 neðra.  Veiðisvæða skipting er alfarið á ábyrgð veiðimanna en við mælum með að fólk hittist kl. 06:45 á bílastæðinu við Urriðafoss og kasti upp á hvor byrjar hvar og hafi 1,5 tíma skiptingu. 
 
Urriðafoss er ein af náttúruperlum Íslands og menn eru skyldaðir til þess að ganga vel um svæðið og hirða allt rusl.  Ekki er leyfilegt að gera að fiskum við ána. 
 

Þjórsá er stór og mikil og skulu menn hafa fara varlega.   Áin er mjög hættuleg og er mælst til þess að fólk vaði hvorki, né taki aðra óþarfa áhættu. Veiðimenn eru á eigin ábyrgð við veiðar í Urriðafossi.

Við biðjum veiðimenn að umgangast áfengi með gát og ölvun á svæðinu er stranglega bönnuð því hún skapar hættu.  

Vinsælar flugur

Stórar einkrækjur henta ágætlega því oft er svo mikið af laxi á svæðinu að þríkrækjur húkka í fiska.  

Hentug veiðitæki

Vatnið í Þjórsá er jökulvatn og er allflesta daga litað en mismunandi mikið litað. Svo maðkveiði eða veiðar með t.d. túbu og sökku hentar mjög vel. Þá daga sem vatnið er fallegt á litin er einnig hægt að nota venjulegar flugur og útbúnað sem hentar þannig veiðum.

Gisting

Gisting fylgir ekki veiðileyfunum en bændur á Urriðafossi bjóða upp á tvennskonar gistingu, nýju sumarhúsi með útsýni yfir fossinn og í gömlu nýuppgerðu húsi á bæjarstæðinu. 

Veiðifólk hefur aðgang að litlu sumarhúsi þar sem hægt er að snæða nesti, komast á klósett og nota grill.  Sumarhúsið er á hægri hönd áður en komið er að bænum Urriðafossi.  Fyrsta húsið sem komið er að þegar beygt er afleggjarann að bænum.  

Veiðimenn er beðnir að hirða allt rusl, skila húsi hreinu og í því ástandi sem þeir komu að því.

Staðsetning

Urriðafoss: 63.924637, -20.674986

Fjöldi stanga

4 stangir, 2 & 2 stangir seldar saman.

Leyfilegt agn

Veiða má á flugu og maðk. þegar veiðimenn veiða með flugu er hámarkstærð þríkrækju no 6. brot á veiðireglum heimila landeiganda að gera allan afla uptækan og reka menn á brott.

Kvóti

Maí: Öllum laxi sleppt. 1. - 9. júní: 2 laxar á stöng á dag. 10. júní - 30. sept: 5 laxar á stöng á dag. Mælst verður til að menn hlífi stórlaxi sé það mögulegt. Þegar kvóta er náð, þá er skylda að hætta að veiða. Hvorki má þá veiða á maðk eða flugu. Svo ef menn ætla að láta veiðina endast út daginn er fólki ráðlagt að sleppa ósárum fiskum og klára ekki kvótann snemma. Brot á kvótareglum heimila landeiganda að gera allan afla upptækan.

Veiðitímabil

1. júní - 15. sept

Daglegur veiðitími

1/6-10/8: 07:00-13:00 og 16:00-22:00. 11-31/8: 07:00-13:00 og 15:00-21:00. 1-15/9: 07:00-13:00 og 14:00-20:00.

Veiðivarsla

Haraldur Einarsson s:699 8238

Skráning afla

Veiðibók er í kassa við bílastæði, vinsamlegast skráið allan afla.