Vatnasvæði Lýsu, Snæfellsnesi

Almennar upplýsingar

Fjölskylduparadís með góðri laxavon síðsumars. 

Vatnasvæði Lýsu er frábær silungsveiðikostur á Sunnanverðu Snæfellsnesi og í bestu árum hafa veiðst hátt í 200 laxar á sumri.

Fyrri hluti sumars veiðist mest af bleikju og urriða en þegar líður á júlí er töluverð laxavon á svæðinu.  Á haustin bætist svo sjóbirtingurinn við og er svæðið einna mest spennandi seinni hluta sumars. Þetta er frábær og ódýr kostur fyrir veiðifólk á einum fegursta stað landsins.  

Það er mikill fiskur í vötnunum en veiðin er bæði upp og niður eftir veðri og vindum. Laxinn er yfirleitt smálax en allt að 19 punda fiskar hafa veiðst og silungurinn er aðallega frá 400 gr -1.000 gr.

ATH! Öllum laxi skal sleppt 

Við biðjum veiðifólk að virða daglegan veiðitíma og virða veiðihlé sem er á milli 13-15

Bóka veiðileyfi

01 jún. 02 jún. 03 jún. 04 jún. 05 jún. 06 jún. 07 jún. 08 jún. 09 jún. 10 jún. 11 jún. 12 jún. 13 jún. 14 jún. 15 jún. 16 jún. 17 jún. 18 jún. 19 jún. 20 jún. 21 jún. 22 jún. 23 jún. 24 jún. 25 jún. 26 jún. 27 jún. 28 jún. 29 jún. 30 jún. 01 júl. 02 júl. 03 júl. 04 júl. 05 júl. 06 júl. 07 júl. 08 júl. 09 júl. 10 júl. 11 júl. 12 júl. 13 júl. 14 júl. 15 júl. 16 júl. 17 júl. 18 júl. 19 júl. 20 júl. 21 júl. 22 júl. 23 júl. 24 júl. 25 júl. 26 júl. 27 júl. 28 júl. 29 júl. 30 júl. 31 júl. 01 ágú. 02 ágú. 03 ágú. 04 ágú. 05 ágú. 06 ágú. 07 ágú. 08 ágú. 09 ágú. 10 ágú. 11 ágú. 12 ágú. 13 ágú. 14 ágú. 15 ágú. 16 ágú. 17 ágú. 18 ágú. 19 ágú. 20 ágú. 21 ágú. 22 ágú. 23 ágú. 24 ágú. 25 ágú. 26 ágú. 27 ágú. 28 ágú. 29 ágú. 30 ágú. 31 ágú. 01 sep. 02 sep. 03 sep. 04 sep. 05 sep. 06 sep. 07 sep. 08 sep. 09 sep. 10 sep. 11 sep. 12 sep. 13 sep. 14 sep. 15 sep. 16 sep. 17 sep. 18 sep. 19 sep. 20 sep.
Vatnasvæði Lýsu
5
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
4
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
3
6
6
6
4
4
4
4
4
4
6
6
6
6
6
3
3
3
6
6
6
6
6
6
6
6
5
6
4
2

Leiðarlýsing og veiðisvæði

Vatnasvæði Lýsu er fyrir miðju Snæfellsnesi að sunnanverðu, rétt við Lýsuhól.  Svæðið er: Torfavatn, Reyðarvatn, Lýsuvatn, Hóp og Vatnsholtsá og lækir sem liggja á milli vatnana.   Mesta laxveiðin hefur verið í Vatnsholtsá sem fellur til sjávar á milli bæjanna Ytri Garða og Vatnsholts í Staðarveit.   Áin er stutt en í hana fellur áin Lýsa sem á upptök ofan byggðar.  Einnig rennur í hana afrennsli nokkurra vatna austur frá ánni.  
 
Veiðisvæðið skiptist í tvö þriggjastanga veiðisvæði og veitt er 6 klst. á hvoru svæði.  Skipt í hádeginu eða eftir frekari samkomulagi.
 
ATH!  til að veiða Vatnholtsá skal keyra niður að ós vestan megin við ána.  Beygt niður að sjó þar sem stendur rafmagnsskúr.  Ath! vegur er eingöngu fær jeppum. Einnig er hægt að leggja við brúna og ganga niður með ánni.  Ekki má keyra inn að bæjum austan megin við ána.  
 
Veiðifólk hittist á bílastæði við Gistiheimilið Langaholt kl. 06:45 að morgni til að draga.  Ef hinar stangirnar eru ekki mættar kl. 06:50 þá mega þeir sem eru á undan velja hvar þeir byrja og svo er skipt á hádegi.

Gisting

Margir gistimöguleikar eru á svæðinu. T.d. Vatnsholt, Kast Guesthouse, Hótel Búðir, Hellnar og fl. 

Leiðsögn

Magnús Antonsson ólst upp á Vatnasvæði Lýsu og þekkir svæðið manna best.  Hægt er að bóka hann sem leiðsögumann ef haft er samband tímanlega. 

Vinsælar flugur

Á vorin: hefðbundnar púpur og straumflugur
Á sumrin, litlar laxaflugur og hefðbundnar púpur og straumflugur fyrir sjóbirtinginn. 

Hentug veiðitæki

Nettar einhendur með flotlínu

Staðsetning

Snæfellsnes sunnanvert.

Fjöldi stanga

6 stangir.

Leyfilegt agn

Fluga og spúnn. Maðkveiði og beita stranglega bönnuð.

Kvóti

Ekki eru takmarkanir á silungsveiði en öllum laxi skal sleppt.

Veiðitímabil

1. júní - 20. sept

Daglegur veiðitími

7:00-13:00 og 16:00-22:00 Frá 20. ágúst 07:00-13:00 og 15:00-21:00

Veiðivarsla

Sigrún Katrín 8987086 og Þór Fannberg 8958987

Skráning afla

Vinsamlegast skráið allan afla inn á anglingiq.com (app eða vefsíðu) Annars sendið yfirlit yfir veiðina á [email protected]