Scorpio 12,8ft – 26gr, Tvíhenda

152.800 kr.

Scorpio 12,8ft – 26gr

Ef þú ert að leita að stöng fyrir meðalstórar laxveiðiár, þá er Scorpio 12’6” frábært val. Hún er nett og nákvæm, en býr samt yfir nægu afli til að takast á við stóra fiska af öryggi.

Þessi stöng hefur reynst sérstaklega vinsæl meðal þeirra sem veiða bæði lax og sjóbirting hér á landi. Með 26 gramma línuþyngd býður hún upp á einstakt jafnvægi milli léttleika og nákvæmni, en skilar hámarks stjórn við fjölbreyttar aðstæður.

Tillögur að línum og hjólum:
Logic skothaus – 26 grömm / 401 grain
Short-cut skothaus – 26 grömm / 401 grain
Logic running lína – 0.030
Salmologic hjól – stærð nr. 3

Lengd stangarhólks: 86 cm

Í boði sem biðpöntun

Share:

Scorpio flugustangir

Scorpio stangirnar eru hannaðar með áherslu á styrk, hraða og nákvæmni. Við framleiðslu þeirra er notuð blanda kolefnis og grafens sem skilar stífari, kvikari og næmari stöng en hefðbundin kolefnisblönduð efni.

Samspil kolefnis og grafens gerir stöngina auðveldari í hleðslu og eykur stjórn á línunni í köstum. Orkan hleðst jafnt upp í stönginni og flyst hratt yfir í flugulínuna með lágmarks orkutapi, sem skilar sér í betri tímasetningu og aukinni nákvæmni.

Hraðinn í Scorpio stöngunum er aðlagaður að hverju módeli fyrir sig. Neðri hluti blankans sér um kraftinn á meðan efri hlutinn stýrir línunni, sem tryggir jafnvægi milli nákvæmni og fjarlægðar, óháð lengd stangar eða línuþyngd.

Útlit Scorpio er klassískt með nútímalegum frágangi. Blankinn er svartur og lakkaður með hágæða epoxýhúð. Vindingar og lógó eru í koparlit sem gefur stöngunum fágað og tímalaust yfirbragð.

Þyngri módelin, frá 18 til 35 grömmum, eru búin endingargóðu samsettu korkhandfangi með skiptanlegum enda og sérhönnuðu up locking hjólasæti úr anodiseruðu áli. Léttari módelin, frá 8 til 12 grömmum, eru með klassísku handfangi úr hágæða portúgölskum korki og hreinu, einföldu hjólasæti án sýnilegra skrúfa eða læsinga.

Allar Scorpio stangir eru útbúnar japönskum Fuji K lykkjum sem tryggja framúrskarandi línuflæði og góða stjórn.

Stangirnar eru afhentar í taupoka með innbyggðum örtrefjaklút og koma í sterkum ferðahólk sem rúmar tvær stangir og hentar vel fyrir ferðalög.

Ábyrgð á stöngum

Scorpio stangir

10'10", 18 gr (switch), 13'2", 31 gr (tvíhenda)

Tengdar vörur

Salmologic_edits__09 copy
Salmologic_edits__09 copy
24gr
24gr
RL_34 copy
kr.