Scorpio 10,10ft – 18gr, Switch

140.000 kr.

Scorpio Switch  10’10” – 18 gr

Scorpio switch er létt í hendi, hentar fyrir léttar línur, en býr engu að síður yfir nægu afli til að ráða við bæði stóran sjóbirting eða lax. Switch stöng er einhenda sem hægt er að kasta eins og tvíhendu. Hún er einstaklega fjölhæf og hefa switch stangir verið lengi í miklu uppáhaldi meðal reynslumikilla fluguveiðimanna.

Scorpio útgáfan er sannkölluð switch stöng, smíðuð úr hágæða kolefni og grafeni. Útkoman er stöng með góðu jafnvægi milli krafts og næmni, sem gefur veiðimanninum bæði frelsi og nákvæmni í kastinu.

 

Tillögur að línum og hjólum:
WF línur (heil flugulína) – 18 grömm / 278 grain
Short-cut skothaus – 18 grömm / 278 grain
Logic running lína – 0.028
Salmologic hjól – stærð nr. 2
Lengd stangarhólks: 75 cm

Share:

Scorpio flugustangir

Scorpio stangirnar eru hannaðar með áherslu á styrk, hraða og nákvæmni. Við framleiðslu þeirra er notuð blanda kolefnis og grafens sem skilar stífari, kvikari og næmari stöng en hefðbundin kolefnisblönduð efni.

Samspil kolefnis og grafens gerir stöngina auðveldari í hleðslu og eykur stjórn á línunni í köstum. Orkan hleðst jafnt upp í stönginni og flyst hratt yfir í flugulínuna með lágmarks orkutapi, sem skilar sér í betri tímasetningu og aukinni nákvæmni.

Hraðinn í Scorpio stöngunum er aðlagaður að hverju módeli fyrir sig. Neðri hluti blankans sér um kraftinn á meðan efri hlutinn stýrir línunni, sem tryggir jafnvægi milli nákvæmni og fjarlægðar, óháð lengd stangar eða línuþyngd.

Útlit Scorpio er klassískt með nútímalegum frágangi. Blankinn er svartur og lakkaður með hágæða epoxýhúð. Vindingar og lógó eru í koparlit sem gefur stöngunum fágað og tímalaust yfirbragð.

Þyngri módelin, frá 18 til 35 grömmum, eru búin endingargóðu samsettu korkhandfangi með skiptanlegum enda og sérhönnuðu up locking hjólasæti úr anodiseruðu áli. Léttari módelin, frá 8 til 12 grömmum, eru með klassísku handfangi úr hágæða portúgölskum korki og hreinu, einföldu hjólasæti án sýnilegra skrúfa eða læsinga.

Allar Scorpio stangir eru útbúnar japönskum Fuji K lykkjum sem tryggja framúrskarandi línuflæði og góða stjórn.

Stangirnar eru afhentar í taupoka með innbyggðum örtrefjaklút og koma í sterkum ferðahólk sem rúmar tvær stangir og hentar vel fyrir ferðalög.

Ábyrgð á stöngum

Scorpio stangir

10'10", 18 gr (switch), 13'2", 31 gr (tvíhenda)

Tengdar vörur

18
18
21
21
18gr s
18gr s
kr.