Reborn 13,9ft – 33gr, Tvíhenda

190.000 kr.

Reborn 13’9” 6-parta – 33 grömm / 509 grain

33 gramma Reborn 13’9 ft er alvöru „power-prik“ – vel úthugsuð tvíhenda, smíðuð eftir sömu hugmyndafræði og 28 gramma Reborn 13’3” stöngin. Hún deilir með henni helstu einkennum: mjúk hleðsla, öflugt flæði og framúrskarandi kastupplifun sem kemur jafnvel reyndum veiðimönnum á óvart. Þetta er stöng sem mun án efa standast tímans tönn.

Það sem aðgreinir þessa lengri útgáfu er hæfileikinn til að bera stærri laxaflugur og túbur þegar aðstæður krefjast – til dæmis snemma sumars þegar laxinn er nýgenginn eða þegar veitt er á djúpum og breiðum stöðum. Þrátt fyrir háa línuþyngd er hún létt í hendi og þægileg, því auðvelt að kasta henni allan liðlangan daginn.

Stöngin er stillt fyrir 33 grömm / 509 grain línur, veltir stöngin stórum sem smáum flugum af öryggi og nákvæmni.

Hún er í 6 pörtum og því þægileg til að ferðast með.

Tillögur að línum og hjólum:
Logic Skothaus – 33 grömm / 509 grain
Logic Running lína . 0.034
Salmologic hjól – stærð nr. 4

Lengd stangarhólks: 78 cm

Share:

Reborn flugustangir

Reborn serían er afrakstur áratuga reynslu í hönnun flugustanga hjá Henrik Mortensen. Markmiðið með Reborn var að sameina eðlisfræði, tækni og raunhæfa notkun í flugveiði.

Stangirnar eru hannaðar sem veiðitól, ekki eingöngu flugustangir til að ná löngum köstum. Áherslan er lögð á nákvæmni, stjórn og jafnvægi í köstum, bæði á stuttum og löngum vegalengdum, sem skiptir sköpum við krefjandi aðstæður.

Reborn stangirnar búa yfir djúpri og hreinni skandinavískri full action hleðslu. Orkan hleðst jafnt upp í stönginni og flyst hratt og mjúklega yfir í flugulínuna með lágmarks áreynslu.

Hver stöng í Reborn seríunni hefur skýrt hlutverk. Hún er hönnuð fyrir tilteknar línuþyngdir og flugugerðir, sem tryggir betri stjórn, nákvæmari köst og meiri ánægju í veiði.

Útlit Reborn er klassískt með nútímalegum frágangi. Blankinn er gegnsær brúnn og breytir lit eftir birtuskilyrðum. Vindingar eru gullitaðar og lógóið í mjúkum ljósum tón. Allar stangir eru lakkaðar með hágæða epoxýhúð.

Þyngri módelin, frá 18 til 33 grömmum, eru búin endingargóðu samsettu korkhandfangi með skiptanlegum enda og sérhönnuðu up locking hjólasæti úr anodiseruðu áli. Léttari módelin, 12 til 14 grömm, eru með klassísku handfangi úr hágæða portúgölskum korki og hreinu, einföldu hjólasæti.

Allar Reborn stangir eru útbúnar japönskum Fuji K lykkjum, sem tryggja framúrskarandi línuflæði og góða stjórn.

Stangirnar eru afhentar í taupoka með innbyggðum örtrefjaklút og koma í sterkum ferðahólk sem rúmar tvær stangir og hentar vel fyrir ferðalög.

Ábyrgð á stöngum

Tengdar vörur

1
1
18
18
21
21
18
18