Reborn 13,3ft – 28gr, Tvíhenda

190.000 kr.

Reborn 13’3” 6-parta – 28 grömm / 432 grain

Reborn 13’3” er hönnuð fyrir veiðimenn sem leita að tvíhendu með nákvæma hleðslu, léttleika og frábæra kastgetu. Stöngin byggir á tæknilegri nálgun þar sem ólík kolefnisefni eru sameinuð í einum blank, sem skilar betri orkuupptöku og meiri nákvæmni.

Með nýjustu graphene+ uppfærslunni hefur stöngin mjúkt og djúpt kastflæði sem gerir bæði stutt og löng köst áreynslulaus. Hún veitir skýra tilfinningu fyrir línunni og auðveldar rétta tímasetningu – hvort sem unnið er með léttar flugur eða þyngri túbur.

Þrátt fyrir að vera í 6 pörtum er hún einstaklega stöðug og kraftmikil. Frábær kostur fyrir þá sem vilja fjölhæfa tvíhendu sem standast nútíma kröfur veiðimannsins.

Tillögur að línum og hjólum:
Logic skothaus – 28 grömm / 432 grain
Short-cut skothaus – 28 grömm / 432 grain
Logic running lína – 0.032
Salmologic hjól – stærð nr. 4

Lengd stangarhólks: 76 cm

Share:

Reborn flugustangir

Reborn serían er afrakstur áratuga reynslu í hönnun flugustanga hjá Henrik Mortensen. Markmiðið með Reborn var að sameina eðlisfræði, tækni og raunhæfa notkun í flugveiði.

Stangirnar eru hannaðar sem veiðitól, ekki eingöngu flugustangir til að ná löngum köstum. Áherslan er lögð á nákvæmni, stjórn og jafnvægi í köstum, bæði á stuttum og löngum vegalengdum, sem skiptir sköpum við krefjandi aðstæður.

Reborn stangirnar búa yfir djúpri og hreinni skandinavískri full action hleðslu. Orkan hleðst jafnt upp í stönginni og flyst hratt og mjúklega yfir í flugulínuna með lágmarks áreynslu.

Hver stöng í Reborn seríunni hefur skýrt hlutverk. Hún er hönnuð fyrir tilteknar línuþyngdir og flugugerðir, sem tryggir betri stjórn, nákvæmari köst og meiri ánægju í veiði.

Útlit Reborn er klassískt með nútímalegum frágangi. Blankinn er gegnsær brúnn og breytir lit eftir birtuskilyrðum. Vindingar eru gullitaðar og lógóið í mjúkum ljósum tón. Allar stangir eru lakkaðar með hágæða epoxýhúð.

Þyngri módelin, frá 18 til 33 grömmum, eru búin endingargóðu samsettu korkhandfangi með skiptanlegum enda og sérhönnuðu up locking hjólasæti úr anodiseruðu áli. Léttari módelin, 12 til 14 grömm, eru með klassísku handfangi úr hágæða portúgölskum korki og hreinu, einföldu hjólasæti.

Allar Reborn stangir eru útbúnar japönskum Fuji K lykkjum, sem tryggja framúrskarandi línuflæði og góða stjórn.

Stangirnar eru afhentar í taupoka með innbyggðum örtrefjaklút og koma í sterkum ferðahólk sem rúmar tvær stangir og hentar vel fyrir ferðalög.

Ábyrgð á stöngum

Tengdar vörur

Salmologic_edits__09 copy
Salmologic_edits__09 copy
15
15
23
23
29
29