2GO 9ft – 14gr, Einhenda

72.800 kr.

2GO 9ft – 14 gr / 216 grain

Þar sem afl og léttleiki haldast í hendur. Þessi stöng er létt í hendi en býr yfir ótrúlegum krafti og ræður vel við löng köst þegar þess þarf. Hún hentar einstaklega vel í almenna silungsveiði bæði í straumvatni og stöðuvötnum, ásamt smærri laxveiðiám.

Stöngin kastar auðveldlega helstu straumflugum í smærri og meðalstærðum ásamt þyngri púpum.

Tillögur að línum og hjólum:
WF lína – 14 grömm / 216 grain
Salmologic hjól – stærð nr. 1

Lengd stangarhólks: 80 cm

Share:

2GO línan var þróuð fyrir veiðimenn sem vilja áreiðanlega og vandaða flugustöng á hagstæðu verði, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu skref í fluguveiði eða einfaldlega leita að skemmtilegri og auðveldri stöng. Markmið Salmologic með 2GO var að hanna stangir sem auðvelt er að kasta með og gera veiðimönnum kleift að njóta veiðinnar frá fyrsta degi.

Stangirnar eru smíðaðar úr 40T kolefnisblöndu sem gefur þeim mjúka og fyrirgefandi tilfinningu. Það gerir þær sérstaklega skemmtilegar í notkun og eru þær meðal skemmtilegustu stanga sem Henrik Mortensen hefur hannað. Allar stangirnar eru með dökkum títanhúðuðum lykkjum sem þola vel íslenskar aðstæður.

Einhendurnar eru með þægilegu full wells gripi og svörtu hjólasæti. Handföngin eru gerð úr endingargóðri korkblöndu sem endist vel.

Tvíhendurnar eru með klassísku beinu handfangi í stað hins sérstaka Salmologic handfangs. Með því tókst að halda verðinu niðri án þess að skerða gæði stanganna sjálfra.

Allar 2GO stangir eru afhentar í sterku svörtu álhulstri. Hulstrið opnast frá báðum endum og rúmar tvær stangir í einu, sem hentar einstaklega vel fyrir ferðaveiðimenn. Stangirnar koma í bólstruðum taupokum sem hjálpa til við að verja þær í flutningi og ferðalögum.

Ábyrgð á stöngum

Tengdar vörur

21
21
29
29
Untitled design
18gr s
18gr s