2GO 9,6ft – 18gr, Einhenda

78.800 kr.

2GO 9’6” – 18 gr / 278 grain

Þessi stöng er einstaklega kraftmikil en samt létt og auðveld í meðförum. Hún er tilvalin fyrir hitch- og straumflugu- veiði, sérstaklega þegar veiðimenn lenda á tortryggnum löxum eða sjóbirtingum í grunnu vatni. Þar sem hún veitir veiðimanni nákvæm köst og mýkt.

2GO 9’6” gefur veiðimanninum framúrskarandi stjórn á línunni og nákvæma framsetningu flugunnar.

Tillögur að línum og hjólum:
WF Shooter lína – 18 grömm / 278 grain
Short-cut skothaus – 18 grömm / 278 grain
með Logic running línu – 0.028
Salmologic hjól – stærð nr. 2

Lengd stangarhólks: 80 cm

Share:

2GO línan var þróuð fyrir veiðimenn sem eru að byrja í fluguveiði eða veiða af og til – án þess að fórna gæðum. Markmiðið er skýrt: að bjóða upp á áreiðanlega, vandaða stöng á hagstæðu verði sem gerir byrjendum kleift að læra og njóta fluguveiðinnar frá fyrsta degi.

Stangirnar eru smíðaðar úr 40T kolefnis blöndu og eru því mjúkar, fyrirgefandi í köstum sem auðveldar bæði köstin og skilning veiðimanns. Allar stangir eru með dökkum títanhúðuðum lykkjum. Einhendurnar eru með full wells handfangi og svörtu hjólasæti. Handföngin eru gerð úr endingar góðri kork blöndu sem eldast með reisn og fær fallega patínu með tímanum án þess kurllast með tímanum.

Tvíhendurnar í línunni eru með hefðbundnu beinu handfangi í stað signature-grips. Þessi ákvörðun var tekin til að halda kostnaði niðri og leggja áherslu á gæði stangarinnar.

Allar 2GO stangir eru afhentar í svörtu álhulstri sem er hannað af Salmologic. Hulstrið opnast frá báðum endum og rúmar tvær stangir í einu er fullkomið fyrir ferðaveiðimenn. Innan í hulstrinu eru stangirnar í sérmerktum taupokum sem tryggja góða vernd.

Ábyrgð á stöngum

Tengdar vörur

12_8 26g
12_8 26g
29
29
1-19
1-19
Untitled design