2GO línan var þróuð fyrir veiðimenn sem vilja áreiðanlega og vandaða flugustöng á hagstæðu verði, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu skref í fluguveiði eða einfaldlega leita að skemmtilegri og auðveldri stöng. Markmið Salmologic með 2GO var að hanna stangir sem auðvelt er að kasta með og gera veiðimönnum kleift að njóta veiðinnar frá fyrsta degi.
Stangirnar eru smíðaðar úr 40T kolefnisblöndu sem gefur þeim mjúka og fyrirgefandi tilfinningu. Það gerir þær sérstaklega skemmtilegar í notkun og eru þær meðal skemmtilegustu stanga sem Henrik Mortensen hefur hannað. Allar stangirnar eru með dökkum títanhúðuðum lykkjum sem þola vel íslenskar aðstæður.
Einhendurnar eru með þægilegu full wells gripi og svörtu hjólasæti. Handföngin eru gerð úr endingargóðri korkblöndu sem endist vel.
Tvíhendurnar eru með klassísku beinu handfangi í stað hins sérstaka Salmologic handfangs. Með því tókst að halda verðinu niðri án þess að skerða gæði stanganna sjálfra.
Allar 2GO stangir eru afhentar í sterku svörtu álhulstri. Hulstrið opnast frá báðum endum og rúmar tvær stangir í einu, sem hentar einstaklega vel fyrir ferðaveiðimenn. Stangirnar koma í bólstruðum taupokum sem hjálpa til við að verja þær í flutningi og ferðalögum.