2GO 13ft – 28gr, Tvíhenda

104.000 kr.

2GO 13’0” – 28 gr / 432 grain

2GO 13’0” 28gr er öflug, næm og einstaklega stöðug tvíhendustöng sem hentar vel í meðalstórar og stærri laxveiðiár þar sem þörf er á að veiða djúpt með sökktaumum og túpuflugum, sem eru oft lykillinn að árangri.

Stöngin veltir línunni auðveldlega af vatninu og gerir veiðimönnum kleift að kasta línunni  af mikilli nákvæmni og lítilli fyrirhöfn. Hún hefur ákveðin „sleggju“ áhrif sem skilar löngum og kraftmiklum köstum án þess að missa tilfinningu eða stjórn.

Þrátt fyrir mikinn kraft er stöngin létt og þægileg í notkun og þreytir því ekki veiðimenn sem vilja kasta allan liðlangan daginn.

Ár á borð við Ytri Rangá henta einstaklega vel fyrir þessa lengd og línuþyngd.

Tillögur að línum og hjólum:

Logic skothaus  – 28 grömm / 432 grain
með Logic running línu – 0.034
Salmologic hjól – stærð nr. 3

Lengd stangarhólks: 80 cm

Share:

2GO línan var þróuð fyrir veiðimenn sem vilja áreiðanlega og vandaða flugustöng á hagstæðu verði, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu skref í fluguveiði eða einfaldlega leita að skemmtilegri og auðveldri stöng. Markmið Salmologic með 2GO var að hanna stangir sem auðvelt er að kasta með og gera veiðimönnum kleift að njóta veiðinnar frá fyrsta degi.

Stangirnar eru smíðaðar úr 40T kolefnisblöndu sem gefur þeim mjúka og fyrirgefandi tilfinningu. Það gerir þær sérstaklega skemmtilegar í notkun og eru þær meðal skemmtilegustu stanga sem Henrik Mortensen hefur hannað. Allar stangirnar eru með dökkum títanhúðuðum lykkjum sem þola vel íslenskar aðstæður.

Einhendurnar eru með þægilegu full wells gripi og svörtu hjólasæti. Handföngin eru gerð úr endingargóðri korkblöndu sem endist vel.

Tvíhendurnar eru með klassísku beinu handfangi í stað hins sérstaka Salmologic handfangs. Með því tókst að halda verðinu niðri án þess að skerða gæði stanganna sjálfra.

Allar 2GO stangir eru afhentar í sterku svörtu álhulstri. Hulstrið opnast frá báðum endum og rúmar tvær stangir í einu, sem hentar einstaklega vel fyrir ferðaveiðimenn. Stangirnar koma í bólstruðum taupokum sem hjálpa til við að verja þær í flutningi og ferðalögum.

Ábyrgð á stöngum

Tengdar vörur

serenity-13_6
serenity-13_6
1-21
1-21
1-19
1-19
18gr s
18gr s