Ytri Rangá komin í Vefsölu
Ytri Rangá var aflahæsta áin árið 2025 og hefur verið meðal fremstu laxveiðiáa landsins síðustu fimm ár. Árið 2025 gaf hún hvorki meira né minna en 5690 laxa sem er einstakur árangur og sá besti síðan 2017. Áin hefur sýnt stöðugleika í veiði og vatnsflæði sem gerir hana að einni áreiðanlegustu laxveiðiá landsins.
Ytri Rangá er þekkt fyrir fjölbreytt veiðisvæði og stöðugar göngur og hentar frábærlega veiðimönnum á öllum reynslustigum. Áin liggur í fallegu og opnu landi þar sem aðgengi að veiðistöðum er gott. Við ána er einnig veiðihús sem er opið allt tímabilið frá 20. júní til 20. október og boðið er upp á gistingu í lok júní og október.
Skildu gisting og fæði er frá 30 júní til 27. september.
Nú er opið fyrir bókanir fyrir 2026 og hægt er að tryggja sér leyfi bæði í snemmsumarsveiði, haustveiði eða bóka heilar ferðir í hollum. Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja tryggja sér daga á einu besta laxveiðisvæði landsins áður en áin selst upp.
Fyrirspurnir um holl má senda til Stefáns á [email protected]