Sumarboðinn mættur í Urriðafoss

Laxveiðitímabilið hófst formlega 1. júní og opnaði Urriðafoss eins og venjulega tímabilið á meðal fyrstu laxveiðisvæða landsins. Veiðimenn mættu bjartsýnir til leiks og veðrið lék við þá yfir daginn, sól, hægur vindur og allt að 16 stiga hiti. Það leið ekki á löngu þar til fyrstu fiskarnir létu sjá sig og fyrsti lax sumarsins kom á land snemma dags. Það var Stefán Sigurðsson sem fékk þann heiður að landa fyrsta laxi sumarsins í Urriðafossi.


Þegar upp var staðið komu 7 laxar á land á opnunardeginum. Auk þess settu veiðimenn í 5 fiska fyrir utan þessa 7 sem komu á land, sem bendir til þess að töluvert hafi verið af fiski á ferðinni um svæðið. Stærsti lax dagsins mældist 85 cm og allir laxarnir sem komu á land voru í mjög góðu holdafari, greinilegt að þeir hafa ekki misst úr munnbita yfir veturinn. Einn af eftirminnilegri fiskum dagsins var maríulax sem Lilja Böðvarsdóttir, fyrrverandi húsfreyja á Urriðafossi, landaði. Það vakti athygli margra við árbakkann enda hefur Lilja sterk tengsl við svæðið og sögu þess. Ásamt því kíktu þeir Eggert Skúlason ritstjóri Sporðaköst og Gunnar Bender ritstjóri vefsíðuna Veiðar.

Þótt opnunardagurinn sé aðeins fyrsta skrefið á tímabilinu, þá eru fyrstu fréttir úr fossinum jákvæðar. Töluvert líf sást á svæðinu yfir daginn og veiðimenn urðu varir við fleiri fiska en þá sem komu á land. Næstu dagar verða því spennandi og áhugavert verður að fylgjast með því hvernig göngurnar þróast á komandi vikum. Ef fyrstu vísbendingar sumarsins segja eitthvað til um framhaldið má búast við skemmtilegum dögum við Urriðafoss á næstunni.

Við eigum enn lausar stangir eftir 10. júlí, sem er jafnan einn besti tíminn til að vera í fossinum.
Hægt er að skoða framboð með því að smella hér: Skoða nánar

Kveðja IO Veiðileyfi