Ytri Rangá laxveiði 2026 – lausar stangir í júní, júlí og ágúst
Við höfum sett inn allar lausar stangir á heimasíðu IO veiðileyfi fyrir Ytri Rangá komandi sumarmánuði, það er að segja júní, júlí og ágúst. Í júní eru stangirnar seldar sem stakir dagar frá morgni til kvölds og án gistingar, en einnig er hægt að bóka gistingu með fæði í júní. Frá 30. júní til 27. september er skylda að bóka gistingu og fæði. Á vefnum eru verð á því tímabili innifalin með gistingu og fullu fæði fyrir eina manneskju. Nú fer hver að vera síðastur að næla sér í holl eða stakan dag.
Ytri Rangá var aflahæsta áin árið 2025 og hefur verið meðal fremstu laxveiðiáa landsins síðustu tíu ár. Árið 2025 gaf hún hvorki meira né minna en 5.690 laxa, sem er einstakur árangur og sá besti síðan árið 2017. Áin hefur sýnt mikinn stöðugleika í bæði veiði og vatnsflæði sem gerir hana að einni áreiðanlegustu laxveiðiá landsins. Ytri Rangá er þekkt fyrir fjölbreytt veiðisvæði og stöðugar göngur og hentar frábærlega veiðimönnum á öllum reynslustigum.
Lausir dagar í sumar:
22 júní – ein stöng
23 júní – ein stöng
24 júní FH – ein stöng
24 til 26 júlí – tvær stangir
26 til 28 júlí tvær stangir
23 til 25 ágú. ein stöng
27 til 29 ágú. ein stöng
28 til 29 ágú. ein stöng
29 til 31 ágú. ein stöng
31 ágú. til 1 sept. ein stöng
2 til 3 sept. ein stöng
4 til 5 sept. ein stöng
Fyrirspurnir um holl má einnig senda á Stefán, [email protected]