Gjafabréf IO Veiðileyfa – Fullkomin jólagjöf fyrir veiðifólk

Í aðdraganda jólanna leita margir að gjöf sem gleður veiðimenn og veiðikonur á öllum aldri. Gjafabréf frá IO Veiðileyfi er hentug lausn fyrir þá sem vilja gefa upplifun sem nýtist langt fram á næsta ár.

Gjafabréfið má nýta í veiðileyfi á fjölmörg gjöful svæði IO eða til kaupa á hágæða Salmologic vörum. Þetta er einstaklega fjölhæf gjöf sem hentar þeim sem eiga allt eða vilja prófa eitthvað nýtt. Gjafabréf IO Veiðileyfa er fullkomin jólagjöf fyrir allt veiðifólk sem metur gæði, fagmennsku og skemmtilega upplifun í íslenskri náttúru.

Gjafabréfið gildir í tvö ár frá kaupdegi og er sent sem PDF skjal sem hægt er að prenta út eða senda áfram til viðtakanda. Greitt er fyrir vörur, veiðileyfi eða þjónustu í körfu með kóðanum sem er á gjafabréfinu og ekki er nauðsynlegt að nota alla upphæðina í einu.