Hörku veiði í Urriðafoss
Eftir rólega byrjun veiðitímabilsins hefur Urriðafoss sannarlega vaknað til lífsins. Undanfarna daga hafa verið mjög öflugar göngur og veiðin tekið mikinn kipp. Urriðafoss er nú kominn í 241 laxa og síðasta vika skilaði 145 löxum á land.
Það gefur sterka vísbendingu um að laxinn sé mættur í miklu magni. Haldi göngurnar áfram með sama krafti eru allar líkur á hörkuveiði út júlí og jafnvel út ágúst. Laxinn er einnig farinn að láta sjá sig á Urriðafossi B svæðinu, sem lofar góðu fyrir næstu vikur. Veiðin hefur verið frábær síðustu daga og margir veiðimenn lent í algjöru moki. Undanfarna daga hefur Urriðafoss skilað um 20 til 30 löxum á dag.
Hægt er að skoða framboð með því að smella hér: Skoða nánar
Kveðja IO Veiðileyfi