Skipulag Ytri Rangár komandi veiðitímabils
Hefur þú prófað allt sem Ytri Rangá hefur upp á að bjóða?
Flestir tengja Ytri Rangá fyrst og fremst við laxasvæðið sjálft og góða veiði þar ár eftir ár. En sannleikurinn er sá að vatnasvæðið er mun fjölbreyttara en margir gera sér grein fyrir. Hér er hægt að byrja tímabilið á sjóbirtingi í apríl, færa sig svo yfir í laxinn þegar hann mætir í júní og enda haustið í laxinum. Inn á milli er jafnframt hægt að bæta við silungsdögum á urriðasvæðinu.
Hér fyrir neðan förum við yfir hvernig tímabilið skiptist, hvaða svæði eru opin hvenær og hvernig fyrirkomulagið er á þeim.
Tímabil og svæði
Ytri Rangá, laxasvæðið, hefst 20 júní og stendur til 20 október. Gistiskylda er frá 30 júní til 27 september en utan þess tíma er hún seld í stökum dögum án gistiskyldu í júní og aftur eftir 22 september, það er hægt að bóka gistingu í veiðihúsi Ytri Rangá á þessum tíma. Veiðisvæðið nær frá Árbæjarfossi niður í Hólsá við veiðistaðinn Borg. Frá 8 til 27 september er leyfilegt að veiða á spún og flugu. Þetta eru oft mjög skemmtilegir dagar þar sem fiskurinn er á mikilli hreyfingu.
Smellið hér til að skoða lausa daga.
Hólsá, ósasvæði vesturbakki, er neðsta svæðið. Tvær stangir eru seldar saman í stökum dögum frá 10 júlí til 31 ágúst, sem er helsti göngutíminn. Þarna má veiða á bæði spún og flugu og þegar fiskur er á ferðinni getur menn lent í svakalegu moki. Svæðið nær frá Neðri Borg og alla leið niður að ós.
Smellið hér til að skoða lausa daga.
Gutlfoss svæðið, sem er staðsett ofan Árbæjarfoss, hefur reynst frábært síðsumars og haustsvæði og skilað mjög góðri veiði síðustu ár. Selt er á svæðið frá 1 ágúst til 20 október, tvær stangir saman í stökum dögum. Þar er bæði að finna lax og urriða. Einungis má veiða á flugu og öllum silungi skal sleppt. Svæðið liggur mitt á milli laxasvæðisins og urriðasvæðisins, byrjar á Mælarbreiðu og endar á Grákollustöðum.
Smellið hér til að skoða lausa daga.
Urriðasvæðið hefur heldur betur sótt í sig veðrið síðustu ár og skilað góðri veiði á stórum urriða. Þegar líður á tímabilið eykst jafnframt laxavonin. Hægt er að bóka veiði frá 1 apríl til 20 október og einungis má veiða á flugu. Sleppiskylda er á urriða og laxi. Svæðið er efsta svæðið í ánni og nær frá Mælarbreiðu eða Geldingjarlækjarósi eftir 15 júlí.
Smellið hér til að skoða lausa daga.
Sjóbirtingsveiði í Ytri Rangá stendur frá 1 apríl til 30 maí. Seldar eru 2 til 4 stangir saman í stökum dögum með kósý bústað. Árlega veiðast þar stórir og kraftmiklir birtingar. Svæðið nær frá Ægissíðufossi alla leið út í ós.
Smellið hér til að skoða lausa daga.
Það sem þessi svæði eiga sameiginlegt er frábært aðgengi að helstu veiðistöðum og fjölbreyttar aðstæður sem henda veiðimönnum á öllum stigum.
Ef þú ert að skipuleggja veiðtistímabilið er þetta góður tími til að fara yfir svæðin og lausar dagsetningar.
Hægt er að bóka lausa daga á IOveidileyfi.is eða hafa samband við okkur í tölvupósti:
[email protected]
[email protected]