Frábær veiði í Ytri Rangá og stórar göngur
Veiðileyfi - Flugukastnámskeið - Salmologic veiðivörur - Gjafabréf
Frábær veiði í Ytri Rangá! 🎣
Veiðin hefur verið afar góð í Ytri Rangá undanfarið, síðasta miðvikudagskvöld voru 1119 laxar komnir á land og vermir Ytri Rangá toppsætið yfir veidda laxa á Íslandi – algjör veisla! Laxinn er vel dreifður um alla ánna og stórar göngur sjást dag eftir dag – til dæmis fóru 398 laxar í gegnum teljarann í Ægissíðufossi þann 2. ágúst. Veiðistaðir eins og Löngubakkar og Rangárflúðir hafa verið mjög góðir en einnig er gaman að segja frá því að laxinn er mættur á Hellisey og Tjarnarbreiðu fyrr í ár heldur en í fyrra.
Við eigum spennandi veiðileyfi í boði í ágúst og fram á haustið – hér er stutt yfirlit yfir það sem er laust:
Ytri Rangá – Aðalsvæði
(Húsgjald fyrir einn innifalið í verði)
Ágúst:
13–15 · 17–19 · 19–20 · 24–25 · 25–26 · 26–27 · 27–29 · 29–31
September (eftir 22. sept. er gistiskylda aflögð og stakir dagar seldir):
31–02 · 02–04 · 04–06 · 16–18 · 18–20 · 20–22 (Hosted holl með Árna og Stefáni)
Stakir dagar – 22. eh · 23 · 24 · 25 · 26
Október (frá 7. október er eingöngu fluguveiði leyfð)
Allt selt í stökum dögum – mikið laust en selst hratt upp!
Smellið hér til að kaupa leyfi í Ytri Rangá!
Vesturbakki Hólsár – Ósasvæði
Mikið af laxi að ganga og hægt að lenda í algjörri veislu – Tvær stangir seldar saman í pakka
Laus leyfi í ágúst
6 · 13 · 16 · 17 · 18 · 20 · 21 · 24 · 25 · 26 · 27 · 28 · 29 · 30 · 31
Smellið hér til að kaupa leyfi á Vesturbakka Hólsár!
Gutlfoss – 2 stangir seldar saman (má veiða á fjórar til og með 8. september)
Slatti laust í ágúst, september og október og laxinn byrjar að ganga upp Árbæjarfoss í meira magni þegar skyggja tekur á næturnar
Maðkur og spúnn leyfður frá 9. september
📧 [email protected]
📞 616-1988