Góð veiði í Urriðafossi!
Veiðin í Urriðafossi hefur verið góð í ár og fer heildartalan bráðum að nálgast 500 laxa sem er frábær veiði á aðeins fjórar stangir! Mesta veiðin undanfarið hefur verið í Huldu og Lækjalátri en einnig hafa menn verið varir við lax á Lækjarbreiðunni og frá Skerinu.
Vatnsmagnið í Þjórsá er ágætt en veiðin er oftast betri þegar meira vatn er í ánni, laxinn gengur þá nær landi til að forðast hávaðann í fossinum sjálfum. Vatnsmagn síðustu tvær vikur hefur verið að flökta á milli 350 og 500 rúmmetrar á sekúndu. Við heyrðum í veiðimönnum í síðustu viku sem náðu kvótanum afar fljótt (20 laxar – 5 á stöng) og það allt á flugu, vatnið í Þjórsá var í tærari kantinum þannig flugan gaf best. Helgin var einnig engin undantekning, samkvæmt veiðimanni sem var þar á laugardaginn var fossinn pakkaður af laxi og það tók ekki langan tíma að ná kvótanum!
Göngurnar halda áfram að vera sterkar næstu daga og vikur, við eigum laus veiðileyfi – Smellið hér til að sjá laus leyfi í Urriðafossi!
Nýlega var sett upp nýtt skýli fyrir veiðimenn eða svokallað Pergola, það er strax farið að njóta vinsælda enda er það tilvalið til að fá smá skjól ef illa viðrar.