Flottar göngur í Ytri Rangá
Ytri Rangá er farin að taka vel við sér eftir rólega byrjun. Síðustu daga hafa flottar göngur skilað sér í ána og veiðin er komin í allt annan gír. Bæði smálax og stórlax eru að veiðast og undanfarna daga hefur veiðin verið í kringum 15 til 20 laxa á dag og teljum við að það eigi bara eftir að aukast.
Nýlega gengu 55 laxar í gegnum teljarann og fiskurinn er farinn að dreifa sér vel ofan við Ægissíðufoss. Næsta stórstreymi er 15. júlí og verður spennandi að sjá hvað það skilar af nýjum fiski. Við eigum lausar stangir frá 16. til 19. júlí og einnig frá 24. til 28. júlí. Leyfin eru seld í tveggja eða þriggja daga hollum.
Fyrirspurnir um holl má einnig senda á Stefán, [email protected]
Smellið hér til skoða framboð á veiðileyfum í Ytri Rangá 2026