Andalækur og Fullsæll
fyrir landi Brekku
Almennar upplýsingar
Svæðið er um 3 km langt. Leyfilegt er að veiða í Andalæk og Fullsæl fyrir landi Brekku. Seldar eru fjórar stangir á dag, frá 1. apríl til 24. september.
Töluvert er af urriða á svæðinu, en einnig má finna bleikju stöku sinnum lax á haustin. Fullsæl myndast þegar Andalækur og Brekkulækur sameinast. Andalækur er lindá, en Brekkulækur er dragá sem rennur úr Arnarholtsvötnum. Mikið er um skurði sem falla í Arnarholtsvötn og gefa Brekkulæk rauðan lit, en hann jafnast út við ármótin og gefur Fullsæll rauðan keim. Á svæðinu er mikið af hægum breiðum og djúpum hyljum. Urriðinn leitast við að halda sér við steina eða lænum á þessum breiðum.
Þetta svæði er tilvalið fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fluguveiði.
Bóka veiðileyfi
Vinsælar flugur
Á vorinn hafa litlar straumflugur gefið best t.d. Black Ghost, Nobbler, Dýrbítur, Flæðamús o.fl. Þegar það líður á sumarið verða púpur betri og geta menn lent í ævintýranlegri þurrfluguveiði í réttu aðstæðum.
Hentug veiðitæki
Einhendur fyrir línuþyngdir #3-6 með flotlínu, oft er gott að hafa sökkenda með á vorin þegar áin er vatnsmikil.
Veiðireglur
Svæðinu eru seldar 4 stangir að hámarki á dag.
Veiðimenn eiga að taka allt rusl með sér og ganga vel um bakkana.
Einungis er leyfilegt að ganga um á landi Brekku. Ekki er leyfilegt að veiða af eða ganga um hinn bakkann.
Sleppiskylda er á öllum fiski.
Bannað er að fóðra hross sem eru á svæðinu.
Einungis má leggja á tilgreindum bílastæðum sem merkt eru á kortinu.
Hámarkshraði á svæðinu er 10 km/klst, til að forðast að fæla hross undan reiðmönnum.
Upplýsingar
Staðsetning
64.229755, -20.505732
Fjöldi stanga
4 stangir
Leyfilegt agn
Fluga
Kvóti
Öllum fiski sleppt.
Veiðitímabil
1. apríl - 24. september
Daglegur veiðitími
8:00-20:00
Veiðivarsla
Jón Óskar s: 8698760
Skráning afla
Skilda er að skrá allan afla í net skráningu veiðbókar, ef eitthvað er óljóst er hægt að hafa samband á [email protected]